Árlega er haldin alþjóðleg tónlistarhátíð á Siglufirði sem hefur það að markmiði að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða og þjóðarbrota. Á hátíðinni hefur tónlist fjölmargra þjóða verið kynnt auk þess sem íslensk þjóðlög sitja ætíð í öndvegi. Þjóðlagahátíðin stendur frá miðvikudegi til sunnudags fyrstu heilu vikuna í júlí ár hvert. Auk tónleika er boðið upp á námskeið, bæði í tónlist og handverki, gömlu og nýju. Þá er börnum þátttakenda boðið upp á ókeypis námskeið í leiklist og tónlist.
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði verður ekki haldin sumarið 2020 vegna kórónavírus-faraldursins. Næsta hátíð verður haldin í 21. sinn 7. til 11. júlí 2021, sjá dagskrá hér.
- Sögu Þjóðlagahátíðarinnar og dagskrá fyrri ára er hægt að sjá hér.
- Heimildarmynd um Þjóðlagahátíðina 2017 er hægt að sjá hér.
- Íslenska heimildarmynd um Þjóðlagahátíðina 2012 er hægt að sjá hér.
- Upplýsingar um Siglufjörð og gistingu þar er hægt að sjá hér.
Listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarðinnar á Siglufirði er Gunnsteinn Ólafsson, netfang gol@ismennt.is
Myndin á forsíðu er eftir Gunnar Júl.